Haustfundur HROSSVEST verður haldinn sunnudaginn 23. nóvember n.k. kl. 14 á Hótelinu í Borgarnesi. Á haustfundinum verður tilnefnt hrossaræktarbú Vesturlands, veitt verða verðlaun fyrir hæstu hrossin í hverjum flokki svo og útnefndir einstaklingar til heiðursmerkis HROSSVEST en hér er um að ræða einstaklinga sem hafa lagt sitt af mörkum til félags- og ræktunarstarfs í þágu hestamennskunnar á Vesturlandi. Auk þessa verður gestur fundarins Guðlaugur Antonsson, fyrrum hrossaræktarráðunautur, sem nú er starfsmaður MAST. (Matvælastofnunar) Hann mun koma og fara yfir áherslur í starfi sínu á nýjum vettvangi.